Frábær dagur hjá mér. Það komu heilar 4 manneskjur í sund í
dag.. Það er svona þegar það er rigning...
Hlutir sem eru nauðsynlegir í 8 stunda einveru:
-Bók
-Geisladiskar
-Eins margar Sudoku gátur og þú finnur!
En ok, sjitt þú ert búin að lesa allt sem þú nennir að lesa í
bókinni þann daginn, geisladiskarnir eru orðinir "ofhlustaðir"
(nema einn) og þú hefur gefist upp á öllum Sudoku gátunum (því í
rauninni ertu ömurleg í Sudoku en vilt ekki viðurkenna það!).
Þú gætir byrjað að dansa við diskinn sem er búinn að vera í
tækinu í allan dag, hann er nýr (jeij frábært!). Annar kostur er að
kalla Ofurkindina Ásmund til.
Plastbolli og penni er allt sem þarf til að kalla fram hann Ása
minn. Krotar ofurkind á bollann og sjá! Þú hefur vin til að tala
við! Var farin að fíla mig svolítið eins og Tom Hanks í Cast Away..
"Wilson! Wilson!"
Hugsanir sem eltu mig í dag:
-Ætli fuglar verði lofthræddir (sérstaklega í vindi)
-Hvaðan kemur þessi blómalykt?? (Fann það aldrei út)
-Ojjj kattahlandslykt! (Ekki spyrja mig hvers vegna!)
-Ó mæ god ég er búin að hlusta á þennann disk 8 sinnum...
-Ég held ég sé að missa vitið!!!
Og svona í lokin þá hlustaði ég í alvöru á diskinn 8 sinnum.
The Life Pursuit by Belle and Sebastian er
sennilega einn besti diskur sem ég hef heyrt ævinni...
Þess vegna er lag dagsins óhjákvæmilega með þeim: Funny
Little Frog.